Viðskiptaskilmálar

Viðskiptaskilmálar

Markmið útgáfufélagsins Stórir draumar ehf. er að tryggja viðskiptavinum og áskrifendum vandaðar bækur á hagstæðu verði.

Útgáfufélagið áskilur sér rétt til að hætta við afgreiðslu pantana, þar með talið, vegna rangra verðupplýsinga, skekkju í birgðastöðu eða annarra atvika sem upp geta komið.

Kennitala félagsins Stórir draumar ehf. er 580221-1570 og vsk. númer er 140363.

Vöruafhending

Allar pantanir í vefverslun eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Öllum pöntunum er dreift með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Útgáfufélagið ber af þessum sökum ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.

Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð í vefverslun eru að teknu tilliti til 11% virðisaukaskatts. Sendingarkostnaður innanlands er auk þess innifalinn.

Pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag og sendar á pósthús alla virka daga.

Pantanir sem koma eftir kl 12:00 á föstudögum eru afgreiddar á mánudegi.

Afhendingartími fer eftir afhendingaráætlun Íslandspósts.

Áskrift

Með því að skrá sig í áskrift fær viðkomandi senda bók um hver mánaðarmót meðan að áskriftin er virk. Lágmarksbinding er fjórir mánuðir. Uppsögn áskriftar tekur gildi um næstu mánðarmót eftir að hún berst félaginu.

Að skila og skipta vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á bókum gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær bók er keypt. Bækur þurfa að vera ónotaðar og í upprunalegu ástandi þegar þeim er skilað. Við skil á bókum er miðað við upprunalegt verð þeirra, nema um hafi verið að ræða kaup á útsölu eða á sértilboði. Ef kaupandi vill ekki skipta bók sem skilað er fyrir aðra bók er gefin út inneignarnóta eftir að skil eiga sér stað. Inneignarnótur eru í formi kóða sem notaður er á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Sé farið fram á endurgreiðslu er hún framkvæmd þegar vöru er skilað.

Gölluð vara

Sé bók gölluð er kaupanda boðin önnur bók í skiptum sér að kostnaðarlausu. Einnig er hægt að fara fram á endurgreiðslu. Að öðru leyti vísast til laga um neytendasamninga nr. 16/2016 og laga um neytendakaup 58/2003.

Trúnaður

Útgáfufélagið heitir viðskiptavinum sínum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskipti við félagið. Upplýsingarnar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Póstlisti

Með kaupum í vefverslun Stórra drauma veitir kaupandi heimild til að skrá sig á póstlista (nefndur vinaklúbbur). Viðskiptavinum er heimilt að skrá sig af póstlistanum hvenær sem er.

Varnarþing og gildandi lög

Um þessa viðskiptaskilmála og túlkun þeirra gilda íslensk lög. Rísi upp ágreiningur skal málið rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.